© 2010 -
MIKILVÆG VIÐVÖRUN II
Toyota Avensis með 4AFE (81 kw) 1,6 lítra vél getur skemmt kóðalesara og greiningartölvur.
Tegund: Toyota Avensis 1.6
Gerð: AT220
Vél: 4AFE (81kw)
Árgerð: 10.1997 -
Viðvörunin á eingöngu við evrópumódel með Bosch Motronic 5.4 kveikju. RB kóðar TOY1185, TOY1186, TOY1187 og TOY1188.
Ef kóðalesarinn eða skannin er tengdur við bílinn þegar hann er í gangi eða þegar honum er startað þá sendir bílinn háspennu (allt að 400 volt) í pinna 9 í OBD II tenginu. Þessi spenna eyðileggur alla kóðalesara/greiningartölvur sem tengdar eru við bílinn.
Ef einungis er svissað á bílinn þá er hægt að lesa bilunarkóða.
MIKILVÆG VIÐVÖRUN I
Vandamál með "aftermarket" útvarpstæki í VW, Audi, Seat, Skoda og Opel.
Hægt er að lesa útvörp í mörgum gerðum VW, Audi, Seat, Skoda og Opel af árgerð 1997 og nýrri. Þannig geta þeir sem eru með greiningartölvu t.d. stillt hvort geisladiska magasín er í bílnum og prófað útganga á magnaranum svo eitthvað sé nefnt.
Þessi tenging við tækið fer í gegnum K-
Greiningatölvur jarðtengja K-
Mörg verkstæði í Evrópu neita að greina bíla sem eru með "aftermarket" útvarpstæki af þessari ástæðu.
Ofangreindar viðvaranir eiga við allar greiningartölvur sem tengjast bílum í gegnum OBD II tengi.