Dyno-Scan fyrir Windows breytir tölvunni þinni í fullkomna bílagreiningartölvu.
Dyno-Scan les bilanakóða og upplýsingar frá flestum skynjurum bílsins. Dyno-Scan
hefur verið seldur á Íslandi frá 2006. Í dag nota yfir 100 bílaverkstæði og smurstöðvar
á Íslandi Dyno-Scan, auk þess sem Dyno-Scan er notaður við kennslu í bílgreinum.
Gott
verð og ókeypis uppfærslur
Dyno-Scan kostar aðeins brot af því sem hefðbundnar greiningartölvur kosta. Ekki
þarf að borga nein mánaðargjöld eða árgjöld af Dyno-Scan. Uppfærslur eru ókeypis
og koma þær einu sinni til tvisvar á ári. Uppfærslur er hægt að sækja hér á vefnum.
Les og hreinsar bilanakóða og slekkur viðvörunarljós í mælaborði
Dyno-Scan les bilanakóða
frá bílnum og birtir með stuttri lýsingu á því hvað kóðinn stendur fyrir. Með Dyno-Scan
er leikur einn að hreinsa bilanakóða og slökkva viðvörunarljós eftir að viðgerð hefur
farið fram.
Les yfir 150 gildi frá vél, rafkerfi og eldsneytiskerfi
Með Dyno-Scan er hægt að lesa
yfir 150 gildi frá vél, rafkerfi og eldsneytiskerfi. Þannig hjálpar Dyno-Scan við
að finna og greina jafnvel flóknustu bilanir. Sjá lista yfir gildi [hér].
Stuðningur við OBD-II enhanced bilanakóða
Hægt er að fá viðbót við Dyno-Scan og les
þá kerfið svokallaða OBD-II enhanced bilanakóða fyrir nokkrar tegundir bíla, þar
á meðal Toyota. Með OBD-II enchanded er hægt að lesa Body og Chassis kóða ásamt kóðum
fyrir loftpúða og ABS.
Helstu eiginleikar
- Les og hreinsar alla bilanakóða
- Les yfir 150 gildi frá vél, rafkerfi og eldsneytiskerfi
- Sýnir gögn í rauntíma
- Gefur kost á nákvæmri greiningu á rauntímagögnum
- Sýnir hestaflafjöld og tog vélar
- Sýnir hröðun bílsins
Staðlar sem Dyno-Scan styður
Dyno-Scan getur lesið alla bíla sem hafa OBD II tengi
og uppfylla einn eða fleiri af eftirtöldum stöðlum:
VPW, PWM, ISO, Keyword Protocol
(KWP) 2000, og CAN bus.
Þannig les Dyno-Scan ameríska bíla framleidda frá 1996 og nýrri
Evrópska bíla og japanska
bíla framleidda frá 2002 og nýrri.
Dyno-Scan les einnig eldri Evrópska og Japanska bíla ef þeir styðja ofangreinda staðla.
Til sjá verð smelltu á panta hér fyrir neðan.