Lausnirnar okkar

Markmið car.is er að bjóða spennandi og gagnlegar vörur fyrir bifvélavirkja og bílaáhugamenn. Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á litla yfirbyggingu til að geta boðið hagstæð verð. Í dag bjóðum við gott úrval af mjög fullkomnum OBD II greiningartölvum sem hafa slegið í gegn hjá verkstæðum. Almennt getum við boðið vörur á sambærilegu verði og annar staðar í Evrópu. Við leggjum áherslu á að bjóða eingöngu ósvikna vöru sem keypt er beint af framleiðendum. Þetta gerum við því við vitum að viðskiptavinir okkar eru fagmenn sem þurfa örugg tæki, góða þjónustu og viðgerðaþjónustu.

Upphaf car.is má rekja til ársins 1997 þegar við byrjuðum að þjónusta verkstæði með OBD II lesurum. 2010 verða þáttaskil þegar við gerum samstarfssamning við LAUNCH og byrjuðum að selja Diagun greiningartölvuna. 2011 fékk car svo umboð við Autel greiningatölvur, en hætti sölu á þeim árið 2016.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan fyrstu LAUNCH bilanagreiningartölvurnar Diagun komu á markaðinn. LAUNCH hefur verið í farabroddi með að kynna nýjar og öflugar lausnir fyrir verkstæði. Það sem greinir LAUNCH frá öllum öðrum fyrirtækjum sem selja greiningartölvur er fjöldi uppfærslna sem koma á hverju ári. Þær eru yfir 500, eða a.m.k. 10 á viku. Þetta þýðir að LAUNCH greiningartölvurnar lesa fleiri bíla, því sífellt eru nýir bílar að bætast við.

Frá upphafi höfum við einbeitt okkur að því að kynna og selja vörur til bílaverkstæða um allt land. Í dag finnst varla það verkstæði sem er ekki að nota einhverja lausn frá car.is.

Byrjunin

2010 Byrjuðum við að selja handhelda OBD-II kóðalesra og OBD-II greiningartölvur. Þessar vörur njóta mikilla vinsælda hjá fagmönnum, enda fara saman góð gæði og gott verð.

Umboðsaðili

2010 gerðist Car.is umboðsaðili LAUNCH. LAUNCH er leiðandi framleiðandi á bílaskönnum og bilanagreiningatölvum. Fjölmörg verkstæði eru nú búin að fjárfesta í LAUNCH X-431 Diagun og LAUNCH X-431 QuiCheck.

Við urðum fyrir valinu

2012 valdi AUTEL car.is sem dreifingaraðila. Car.is er eini löglegi dreifingaraðili á ósviknum AUTEL bílaskönnum á Íslandi, eins og sjá má á heimasíðu AUTEL, www.autel-tech.com. (veljið European í fellimyndinni upp í horninu hægra megin).

Það er einnig hægt að hringja í okkur ef þú hefur einhverjar spurningar: 
GSM 774-1771 (Halldór) eða 860-5060 (Kári).

Við komum á staðinn og sýnum vörurnar sé þess óskað.

Ánægðir viðskiptavinir eru okkar aðalsmerki!

Kíktu reglulega á www.car.is svo þú missir ekki af neinu!

car.is er vörumerki H & K heildverslunar ehf.

H & K heildverslun ehf.
k.t. 631210-0820
vsk: 106829
Barðastöðum 59
112 Reykjavík