© 2010 -
Falsaðir, ólöglegir LAUNCH Diagun skannar í umferð.
Undanfarið hefur borið nokkuð á því að verkstæðum hafa verið boðnir til kaups falsaðar,
ólöglegar útgáfur af LAUNCH X-
Vert er að vara við þessum skönnum þannig að menn verði ekki fyrir fjárhagslegu tjóni af því að kaupa falsaða vöru.
Þessi skannar líta næstum eins út og löglegur skanni. Augljósasti munurinn er að ekki stendur International version framan á skannanum.
Hver er áhættan við að kaupa falsaðan LAUNCH?
Fölsuðu skannarnir eru með eldri og takmarkaðri útgáfu af hugbúnaði heldur en original skanni.
Falsaðir skannar hafa minni virkni en original skanni og geta þar af leiðandi ekki lesið allar tegundir frá sumum framleiðendum.
Hugbúnaðurinn er “krakkaður” og þ.a.l. uppfyllir hann ekki öryggiskröfur.
Þú getur ekki uppfært skannan á netinu. Original LAUNCH skanna er hægt að uppfæra næstum daglega með nýjum hugbúnaði. LAUNCH hefur gefið út 753 uppfærslur árið 2011 (nóvember 2011).
Í sumum tilvikum er mönnum boðið að fá uppfærslur í tölvupósti eða á diski. Þetta
eru aldrei nýjustu uppfærslurnar heldur 6 -
Skanninn er falsaður. Yfirvöld geta gert falsaða skanna upptæka hvenær sem er, jafnvel þó þeir hafi verið keyptir í “góðri” trú. Oft getur verið erfitt að fá endurgreiðslu frá söluaðila eftir að búið er að gera ólöglegan búnað upptækan.
Hvernig getur þú vitað hvort verið er að bjóða þér Original skanna eða falsaða eftirlíkingu?
Original skanni er merktur “International version” að framan.
Hugbúnaður skannas á í mesta lagi að vera mánaðar gamall.
Skannanum á að fylgja skráningarblað þar sem fram kemur serial númer skannans og lykilorð fyrir heimasíðu LAUNCH.
Söluaðili á að vera búinn að útbúa svæði fyrir þig á vef LAUNCH þar sem þú getur loggað þig inn og náð í nýjustu uppfærslur hugbúnaðarins daglega og líka náð í eldri útgáfur.
Ef verðið er of gott til að vera satt -
Hér má sjá hvernig Download Center LAUNCH lítur út. Ath. skjámyndi er tekin 25. nóvember 2011. Taktu eftir aldrinum á nýjustu útgáfu hugbúnaðarins.
Ef þú heldur að verið sé að bjóða þér falsaðan LAUNCH X-
Falsaður LAUNCH er ekkert betri þó hann sé seldur af “virðulegu” fyrirtæki. Láttu ekki plata þig.